Innlent

Mögu­legt umboðsleysi stjórnar Að­vent­ista gæti skipt Ölfyssinga máli

Jakob Bjarnar skrifar
Gríðarlegur atgangur er nú vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu íbúa um lóð undir mölunarverksmiðju Heidelberg í Þorlákshöfn
Gríðarlegur atgangur er nú vegna fyrirhugaðrar atkvæðagreiðslu íbúa um lóð undir mölunarverksmiðju Heidelberg í Þorlákshöfn vísir/egill

Kristinn Hallgrímsson lögmaður hjá ARTA lögmönnum hefur sent bæjarstjórn Ölfuss bréf þar sem hann varar hana við hugsanlegu umboðsleysi stjórnar Kirkju sjöunda dags aðventista við efnisölu (KSDA).

Eins og fram hefur komið mun bæjarstjórn Ölfuss hafa boðað til aukafundar vegna bréfs sem Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, sendi bæjarstjórninni vegna staðsetningar mölunarverksmiðju Heidelbergs. 

En eins og Þorsteinn Víglundsson talsmaður Heidelbergs hefur sagt stendur til að reisa þar lokaða mölunarverksmiðju sem fullvinnur efni úr bæði Þrengslunum auk þess sem til stendur að nema jarðefni úr sjávarbotni.

Efnið sem Heidelberg hefur tekið er úr landi sem Kirkja sjöunda dags aðventista á. En þar stendur til að mynda til að moka heilu fjalli, Litla Sandfelli, í mölunarverksmiðjuna og senda sem sem íblöndunarefni í sement til Evrópu. Þorsteinn segir að áhrif þessa lækki gríðarlega kolefnisspor í norðanverðri Evrópu, og hið augljósa sé að þetta er hnattrænt verkefni.

Hængurinn er sá að vafi leikur á um hvort stjórn hafi verið í rétti með að semja um efnistökuna við Heidelberg. Ómar Torfason, sem er meðlimur í söfnuðinum, telur svo vera. Og hefur hann kært málið til lögreglu og vitnar í 28. og 24. grein kirkjulaganna með það. Ómar telur að stjórnin sitji umboðslaus og sé óheimilt að semja um slíka efnistöku. Hvort bæjarstjórn muni taka tillit til þessa atriðis á fundi sínum seinna í dag liggur hins vegar ekki fyrir.


Tengdar fréttir

Óttast að breyta eigi Þor­láks­höfn í rusla­kistu fyrir iðnað sem enginn annar vill

Ef fram fer sem horfir á Þorlákshöfn eftir að taka stakkaskiptum á allra næstu árum; stórfelld flutningsstarfsemi og vinnsla jarðefna af áður óþekktri stærðargráðu sem til stendur að nota sem íblöndunarefni í sement úti í Evrópu, mun breyta Þorlákshöfn til frambúðar. Úr friðsælu sjávarþorpi í annasaman verksmiðjubæ.

Bréf First Wa­ter veldur ringul­reið í bæjar­stjórn Ölfuss

Elliði Vignisson bæjarstjóri kom með hraði til landsins eftir að spurðist fyrir lá að Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, hafði sent bréf þar sem hann vildi gjalda varhug við uppbyggingu malarverksmiðju Heidelberg á svæðinu.

Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts

Boðað hefur verið til sérstaks fundar hjá bæjarstjórn Ölfus vegna bréfs sem forstjóri landeldisins First Water sendi bæjarstjórn í fyrradag. Í bréfinu lýsir hann sig andsnúinn því að mölunarverksmiðja rísi í næsta nágrenni við matvælaframleiðslu



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×